09apríl

Páskar og brjálæði?

Jæja, kannski ég hendi niður nokkrum línum.
Er komin með nýtt fallegt baðherbergi! Skelli trúlega nokkrum myndum inn á eftir ( lofa engu sko!) Það tók tímann sinn en fegurðin er mikil :) Ég er líka komin á fast. En þetta er nú nokkurn veginn eitthvað sem að allir vissu. Svo að þetta eru tæknilega séð ekki miklar fréttir. Uhhh er búin með verknámið mitt á spítalanum á lyflækningadeild 1 og það var geggjað!!! Lærði alveg helling og sá frábærlega mikið. Svo er mikil törn í lærdómi núna um páskana, þar sem að ég verð víst að skila einhverjum verkefnum... Hvað er það ;) Fyrst vældi ég yfir því að það væru engin verkefni á haustönninni en núna væli ég yfir hinu. Það er aldrei hægt að þóknast manni.
En þetta er gott í bili.

09. apríl 2009 klukkan 19:23
Lóa litla Hjarðar
2 athugasemdir
17nóvember

Og þá byrjar það.

Og þá er ég farin í það að blogga aftur. Enda er enginn vakandi á þeim tímum sem að ég vaki á. Svo að ég verð að blaðra einhversstaðar.
Er búin að ná því um þessa helgina að detta svo svaðalega í það, var að sjá myndir á facebook... og já... why ó why... skuggalegt hreinlega. Svo var ég að vinna á Norðurhjarametal, aftur why ó why!!!! Eyrnatappar eru hreinlega málið í því máli. Sunnudagurinn... hann fór í ekkert.
Nákvæmlega ekkert.
Auðvitað átti ég að læra, það er ekki málið gerði það samt ekki.
Núna er ég bara að vona að Auðna leggi ekki aftur í það að djamma með mér í bili, ég var svaðaleg! Takk fyrir djammið Auðna :)

En þá þökkum við flakkaranum fyrir það að hafa nægilega mikið af myndum inni á sér.
En þetta er nóg í bili. held ég... Við sjáum til.

Lóa litla kveður í bili.
17. nóvember 2008 klukkan 03:43
Lóa litla Hjarðar
5 athugasemdir
14nóvember

Hissa

Ég varð svo hissa á því að fólk væri ennþá að skoða bloggið mitt að ég bara segi pass! haha. Góð.

En það er afskaplega lítið að frétta hjá mér. Auðna systir er að koma núna um helgina og við ætlum að ... borða alla helgina. haha.

Skólinn er farin að hræða mig all illilega núna og er farin að fá smávegis fyrir hjartað.

Jólin að nálgast óðfluga og er orðin smávegis spennt að vita til þess að vera á allt öðrum stað, en samt með öllu fólkinu mínu og barni! Jeijjjj. Það má ekki skamma mig en í næstu viku verður farið í það að skreyta allt frá toppi til táar. Vil vera búin að þessu áður en prófin byrja og til þess að njóta þess eitthvað þá verður þetta bara tekið með stæl. Þó svo að það sé fyrir 30 nóv ;)

En þetta er gott í bili. Svo vantar mig manneskju sem að getur teiknað upp allar þær hugmyndir sem ég hef af kjólum. Hausinn á mér er fullur af þeim!

Lóa litla kveður í bili
14. nóvember 2008 klukkan 13:09
Lóa litla Hjarðar
1 athugasemd
06nóvember

Uhhhh, ég fór til Reykjavíkur um daginn. Fékk mér ofurflott tattoo og hitti sambýlingana í Efstasundi 10. Það var afar ánægjulegt, og hitti frænkur mínar Elsu Ágústu og Gunnhildi Evu. Er ekki viss um að Margrét hafi hitt okkur áður í þessum ham. Hún hafði stundum ekki mikið til málanna að leggja.

Skólinn gengur, ég veit ekkert hvernig hann gengur svo að það þýðir ekkert að spyrja.

Foreldrarnir kíktu um helgina. Sá gamli var að fá sér nýtt gifs.

Grín! Það var Halloweenpartý um seinustu helgi og ég saumaði mér kjól. Já, ég bjó hann til úr laki. Það sem að mér dettur í hug á seinustu stundu! Og ég var nokkuð montin með hann. Snjólaug var hjá mér í nokkra daga og það var voðalega notalegt. Hún horfði á mig meðal annars gera þennan ofurfallega kjól og mun trúlega ekki líta á mig sömu augum eftir þetta :)

En segjum þetta gott í bili. Nenni ekki að tala um kreppu!

Lóa litla kveður í bili.
06. nóvember 2008 klukkan 23:03
Lóa litla Hjarðar
5 athugasemdir
29september

Ýmislegt í gangi.

HaHa, plataði þig! Það er ekkert í gangi hjá mér. Nákvæmlega ekki neitt. Mamma var jú ansi hætt komin um daginn, en er komin í lag og er hjá mér núna. Það er voðalega notalegt :)

En allt er bara að ganga sinn vanagang, skólinn gengur, er hætt í Hlíð fór með köku og allt bara sko :)

Næstu helgi verður samt tekið á því! HAHA

Lóa litla kveður í bili.
29. september 2008 klukkan 10:23
Lóa litla Hjarðar
10 athugasemdir
17september

Ái!!!!!

Mig verkjar allsstaðar! Þórunn össs!

Lóa litla kveður í bili.
17. september 2008 klukkan 16:10
Lóa litla Hjarðar
1 athugasemd
10september

Auðna Einstaka eintakið mitt

Þessi færsla er handa þér :)
Fallega systir mín.
En afhverju ertu ekki með símanúmer núna?
Lóa litla kveður í bili.
10. september 2008 klukkan 23:00
Lóa litla Hjarðar
1 athugasemd
09september

Margrét fallega systir mín.

Þessi bloggfærsla er tileinkuð þér.
Njóttu þess.

Lóa litla kveður í bili
09. september 2008 klukkan 20:26
Lóa litla Hjarðar
2 athugasemdir
09september

HA?

Ég hef ekkert merkilegt að segja takk fyrir.
Er samt að fara í fyrstu vísindaferðina mína á föstudaginn með stelpunum. Hlakka til. Er að fara í dag á námstækninámskeið. Það eru 4 skipti og 2 tímar í hvert sinn. Kannski verð ég æði eftir það. Hver veit.

Lóa litla kveður í bili.
09. september 2008 klukkan 10:41
Lóa litla Hjarðar
Engin athugasemd
01september

Vírus

í mér ekki tölvunni. Fínt...

En setti inn myndir frá helginni.

Lóa litla sem lítur út eins og hamstur segir bless í bili
01. september 2008 klukkan 12:01
Lóa litla Hjarðar
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lóa litla Hjarðar
  • Hjúskaparstaða: Single belive it or not.
  • Um mig: Ég er æði. Ef þú hefur eitthvað annað um það að segja þá ertu greinilega ekki á réttum stað!

Prófíll

  • Nafn: Lóa litla Hjarðar
  • Hjúskaparstaða: Single belive it or not.
  • Um mig: Ég er æði. Ef þú hefur eitthvað annað um það að segja þá ertu greinilega ekki á réttum stað!

Klukkan